{"id":76,"date":"2025-05-02T10:29:19","date_gmt":"2025-05-02T10:29:19","guid":{"rendered":"https:\/\/ffu.is\/?page_id=76"},"modified":"2025-08-28T19:42:00","modified_gmt":"2025-08-28T19:42:00","slug":"greinar","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/ffu.is\/?page_id=76","title":{"rendered":"Pistlar"},"content":{"rendered":"\n<p><\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\">Hvar liggur \u00e1byrg\u00f0 hins fullor\u00f0na \u00e1 heg\u00f0un ungmenna \u00ed samf\u00e9laginu?<\/h2>\n\n\n\n<p>Undanfarin \u00e1r hafa \u00e1hyggjur beinst a\u00f0 heg\u00f0un ungmenna \u00ed \u00edslensku samf\u00e9lagi. Umr\u00e6\u00f0an hefur sn\u00faist um agaleysi \u00ed sk\u00f3lum, \u00f3gnandi og ofbeldisfulla heg\u00f0un, vir\u00f0ingarleysi og auknum samskiptavanda. Hva\u00f0 ef vi\u00f0 horfum \u00e1 \u00feessa heg\u00f0un \u00fat fr\u00e1 \u00feeim forsendum a\u00f0 heg\u00f0unarvandi barna er birtingarmynd af st\u00e6rri vanda \u00ed samf\u00e9laginu?<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"> Er skortur \u00e1 samf\u00e9lagslegri \u00e1byrg\u00f0?<\/h2>\n\n\n\n<p>Hra\u00f0ar breytingar \u00ed s\u00edbreytilegu samf\u00e9lagi eru einkennandi fyrir \u00fea\u00f0 samf\u00e9lag sem vi\u00f0 b\u00faum \u00ed, \u00e9g velti fyrir m\u00e9r mikilv\u00e6gi sameiginlegra gilda og vi\u00f0mi\u00f0a \u00ed samf\u00e9laginu og hva\u00f0 gerist \u00feegar \u00feau eru ekki lengur sk\u00fdr. F\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ingurinn \u00c9mile Durkheim l\u00fdsir \u00feessu \u00e1 \u00feann veg a\u00f0 \u00feegar vi\u00f0mi\u00f0 \u00ed samf\u00e9laginu rofna og einstaklingur stendur eftir \u00e1n lei\u00f0sagnar skapast \u00f3jafnv\u00e6gi og nota\u00f0i hann hugtaki\u00f0 an\u00f3m\u00edu e\u00f0a normleysu yfir \u00feetta \u00e1stand.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00fat\u00edmafr\u00e6\u00f0ingar t\u00f3ku hugmyndir Durkheim lengra og tala Meshcheryakova og Vasilenko (2023) um \u00edgrunda\u00f0a an\u00f3m\u00edu, en me\u00f0 \u00fev\u00ed eiga \u00feeir vi\u00f0 \u00feegar samf\u00e9lagi\u00f0 er s\u00edendurteki\u00f0 a\u00f0 endurskilgreina s\u00edn gildi \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feau s\u00e9u \u00f6llum sk\u00fdr e\u00f0a einstaklingur finnur fyrir samkennd \u00ed \u00feessari ringulrei\u00f0. Ef vi\u00f0 veltum \u00feessu sj\u00f3narhorni fyrir okkur er au\u00f0veldara a\u00f0 velta upp spurningunni hvort heg\u00f0unarvandi barna s\u00e9 vi\u00f0brag\u00f0 vi\u00f0 \u00f3st\u00f6\u00f0ugleika \u00ed samf\u00e9laginu sj\u00e1lfu. Hva\u00f0 gerist ef vi\u00f0 leggjum \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 hl\u00faa a\u00f0 fj\u00f6lskyldum \u00ed samf\u00e9laginu?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar vi\u00f0 sko\u00f0um \u00fearfap\u00edram\u00edda Maslow \u00fe\u00e1 horfum vi\u00f0 \u00ed mikilv\u00e6gi fyrstu \u00fe\u00e1tta \u00ed p\u00edram\u00eddanum \u00fear sem grunn\u00fearfir eins og l\u00edkamlegar \u00fearfir og \u00f6ryggi er grunnur sem byggt er ofan \u00e1. Ef \u00feessi grunnur er ekki fyrir hendi \u00fe\u00e1 eru undirst\u00f6\u00f0ur okkar \u00f3st\u00f6\u00f0ugar. Ungmenni sem upplifa sig \u00f3\u00f6rugg \u00ed sk\u00f3lanum eru \u00f3l\u00edklegri til a\u00f0 l\u00e6ra \u00fev\u00ed streitukerfi\u00f0 \u00feeirra er st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 virkjast.<\/p>\n\n\n\n<p>Ranns\u00f3knir hafa s\u00fdnt a\u00f0 b\u00f6rn sem alast upp \u00ed j\u00e1kv\u00e6\u00f0u og \u00f6ruggu umhverfi eru \u00f3l\u00edklegri til a\u00f0 \u00fer\u00f3a me\u00f0 s\u00e9r lyndisraskanir \u00e1 fullor\u00f0ins\u00e1rum. B\u00f6rn sem alast upp \u00ed \u00f3st\u00f6\u00f0ugu og m\u00f6gulega \u00f3gnandi umhverfi, \u00fe\u00e1 s\u00e9rlega hj\u00e1 fj\u00f6lskyldum \u00ed l\u00e6gri efnahagsst\u00f6\u00f0u eru l\u00edklegri til a\u00f0 hafa vi\u00f0kv\u00e6mara taugakerfi og vera n\u00e6mari fyrir streitu. Aukin vi\u00f0brag\u00f0sn\u00e6mni getur svo haft forsp\u00e1rgildi um auknar l\u00edkur \u00e1 \u00fer\u00f3un lyndisraskana seinna \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni (McLaughlin o.fl., 2010).<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\">Er heg\u00f0un barna samf\u00e9lagsleg vi\u00f0v\u00f6run?<\/h2>\n\n\n\n<p>Ungmenni eru ekki eing\u00f6ngu f\u00f3rnarl\u00f6mb samf\u00e9lagsins, heldur einnig spegilmynd \u00feess. \u00deegar \u00feau s\u00fdna einkenni vanl\u00ed\u00f0unar e\u00f0a fr\u00e1viksheg\u00f0unar, er mikilv\u00e6gt a\u00f0 horfa \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed samhengi og velta upp spurningunni hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 samf\u00e9lagslega vi\u00f0v\u00f6run? Eins og Durkheim tala\u00f0i um a\u00f0 \u00feegar hef\u00f0bundin gildi og vi\u00f0mi\u00f0 veikjast, lei\u00f0ir \u00fea\u00f0 til \u00f3\u00f6ryggis og ruglings. Sl\u00edkt \u00e1stand getur leitt til aukinnar vanl\u00ed\u00f0unar me\u00f0al einstaklinga, s\u00e9rstaklega barna og ungmenna sem eru a\u00f0 reyna a\u00f0 skilja reglur samf\u00e9lagsins \u00e1 me\u00f0an \u00fe\u00e6r eru st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 breytast.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef vi\u00f0 l\u00edtum \u00e1 heg\u00f0un unglinga sem v\u00edsbendingu um brotalamir \u00ed samf\u00e9laginu, ver\u00f0um vi\u00f0 ekki a\u00f0eins a\u00f0 sty\u00f0ja b\u00f6rnin og fj\u00f6lskylduna heldur einnig a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 \u00fe\u00f6rfina fyrir samf\u00e9lagslegar breytingar. B\u00f6rnin okkar endurspegla samf\u00e9lagi\u00f0 okkar og \u00feegar \u00feau lenda \u00ed erfi\u00f0leikum getur \u00fea\u00f0 stafa\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eitthva\u00f0 a\u00f0 \u00ed samf\u00e9laginu sem vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 laga. Vi\u00f0 \u00feurfum \u00fev\u00ed ekki eing\u00f6ngu a\u00f0 sko\u00f0a heg\u00f0un barna, heldur einnig samhengi hennar og leita lei\u00f0a til a\u00f0 b\u00e6ta \u00fea\u00f0 samf\u00e9lag sem \u00feau alast upp \u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef b\u00f6rn gl\u00edma vi\u00f0 skort \u00e1 festu, ramma og tilgangi, spyr \u00e9g: Hva\u00f0a samf\u00e9lag h\u00f6fum vi\u00f0 skapa\u00f0 fyrir \u00feau? Hvernig er umhverfi\u00f0 sem \u00feau alast upp \u00ed? Sk\u00f3lakerfi sem gl\u00edmir vi\u00f0 manneklu og verkf\u00f6ll \u00ed hra\u00f0a n\u00fat\u00edmans \u00fear sem kr\u00f6fur um \u00e1rangur og frammist\u00f6\u00f0u byrja snemma. Samskiptami\u00f0lar sem bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 st\u00f6\u00f0ugan samanbur\u00f0 og takmarka\u00f0 \u00f6ryggi? Foreldrar sem keppast vi\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 endum saman og eru m\u00f6gulega sj\u00e1lf \u00f3\u00f6rugg um leikreglurnar \u00ed samf\u00e9laginu.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 foreldrar, kennarar, lei\u00f0togar og stefnum\u00f3tendur erum ekki a\u00f0eins \u00e1horfendur, heldur virkir \u00fe\u00e1tttakendur \u00ed m\u00f3tun \u00feess samf\u00e9lags sem b\u00f6rn lifa \u00ed.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\">\u00c1herslubreyting \u00ed umr\u00e6\u00f0unni um vanda ungmenna<\/h2>\n\n\n\n<p>\u00c9g legg til a\u00f0 vi\u00f0 breytum um \u00e1herslu \u00ed umr\u00e6\u00f0unni um vanda ungmenna og \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 horfa \u00e1 a\u00f0 heg\u00f0un \u00feeirra sem \u201evandam\u00e1li\u00f0\u201c a\u00f0 horfa \u00ed \u00fea\u00f0 umhverfi sem vi\u00f0 h\u00f6fum skapa\u00f0 fyrir ungmennin okkar. L\u00edta \u00e1 heg\u00f0un ungmenna sem aflei\u00f0ing af \u00feeirri samf\u00e9lagsger\u00f0 sem vi\u00f0 \u00f6ll h\u00f6fum teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 skapa.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd lokin velti \u00e9g upp \u00feeirri spurningu ef vi\u00f0, fullor\u00f0na f\u00f3lki\u00f0 setjum \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 byggja upp \u00fea\u00f0 samf\u00e9lag sem vi\u00f0 getum veri\u00f0 s\u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0 b\u00faa \u00ed, t\u00f6kum \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 eigin heg\u00f0un og l\u00edtum \u00e1 okkur sem fyrirmynd ungmenna, ver\u00f0ur breyting \u00e1 heg\u00f0un ungmenna n\u00e1tt\u00faruleg aflei\u00f0ing af \u00feeirri \u00e1herslubreytingu?<\/p>\n\n\n\n<p><em>Rakel Gu\u00f0bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, foreldra- og uppeldisfr\u00e6\u00f0ingur.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hvar liggur \u00e1byrg\u00f0 hins fullor\u00f0na \u00e1 heg\u00f0un ungmenna \u00ed samf\u00e9laginu? Undanfarin \u00e1r hafa \u00e1hyggjur beinst a\u00f0 heg\u00f0un ungmenna \u00ed \u00edslensku samf\u00e9lagi. Umr\u00e6\u00f0an hefur sn\u00faist um agaleysi \u00ed sk\u00f3lum, \u00f3gnandi og ofbeldisfulla heg\u00f0un, vir\u00f0ingarleysi og auknum samskiptavanda. Hva\u00f0 ef vi\u00f0 horfum \u00e1 \u00feessa heg\u00f0un \u00fat fr\u00e1 \u00feeim forsendum a\u00f0 heg\u00f0unarvandi barna er birtingarmynd af st\u00e6rri vanda [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-76","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ffu.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/76","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ffu.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/ffu.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ffu.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ffu.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=76"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/ffu.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/76\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":95,"href":"https:\/\/ffu.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/76\/revisions\/95"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ffu.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=76"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}